Klettabær
Klettabær
Klettabær

Deildarstjóri hjá Klettabæ

Klettabær leitar að öflugum og lausnamiðuðum leiðtoga með jákvætt viðhorf og framúrskarandi samskiptahæfileika til að sinna starfi deildarstjóra.

Um Klettabæ

Klettabær sinnir einstaklingum með margþættar þarfir, þar sem lögð er áhersla á sértæka og einstaklingsmiðaða þjónustu. Við vinnum út frá hugmyndafræðinni um fjöláfalla- og tengslamiðaðan stuðning með það að markmiði að stuðla að jöfnum tækifærum, þátttöku og lífsgæðum ungs fólks á eigin forsendum.

Einkennisorð okkar eru: Ástríða – Fagmennska – Gleði – Umhyggja

Hlutverk og ábyrgð

Deildarstjóri ber faglega ábyrgð á og hefur umsjón með framkvæmd þjónustu við þjónustunotendur og starfsmannahóps heimilis í samráði við forstöðumann, sviðsstjóra og fagteymi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Gera einstaklingsáætlanir í samstarfi við þjónustunotendur, fagteymi Klettabæjar og forstöðumenn
  • Tryggja að framvinda einstaklingsáætlana sé metin reglulega
  • Vera í samskiptum við forsjáraðila og aðra lykilaðila
  • Aðlaga nýja starfsmenn ásamt því að leiðbeina og styðja sinn starfsmannhóp
  • Hafa umsjón með daglegri forgangsröðun og framkvæmd verkefna
  • Þróa verkferla og tryggja miðlun upplýsinga til starfsfólks
  • Útbúa vaktaplön 
  • Fylgja eftir verklagi og gæðum þjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði félags-, heilbrigðis- eða menntavísinda
  • Reynsla af stjórnun er æskileg
  • Frábær samskipta- og leiðtogafærni
  • Sveigjanleiki, sjálfstæði og skipulagshæfni
  • Frumkvæði og jákvæðni í starfi
  • Viðkomandi þarf að hafa náð 25 ára aldri
  • Bílpróf
  • Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi

Við leggjum áherslu á starfsánægju, góða starfsaðlögun og markvissa þjálfun.
Hjá okkur færðu tækifæri til að:

  • Þróa þig í starfi með handleiðslu og fræðslu
  • Taka virkan þátt í þróunar- og uppbyggingarvinnu
  • Vinna í umhverfi þar sem metnaður, samkennd og fagmennska eru í fyrirrúmi
Advertisement published25. November 2025
Application deadline7. December 2025
Language skills
No specific language requirements
Location
Hlíðasmári 10, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Care (children/elderly/disabled)
Work environment
Professions
Job Tags