EFLA hf
EFLA hf
EFLA hf

Verkefnastjóri í viðhaldsráðgjöf

EFLA leitar að metnaðarfullum og áhugasömum verkefnastjóra í viðhaldsráðgjöf. Um er að ræða starf á sviði bygginga í fagteymi um byggingartækni. Sem sérfræðingur í byggingartækni færð þú tækifæri til að starfa í fjölbreyttum verkefnum tengdum viðhaldi innan- og utanhúss, svo sem umsjón og eftirliti verklegra framkvæmda, rakaskimunum, ástandsskoðun, gallagreiningu og tillögum að endurbótum, auk verkefnastýringar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkefnastýring
  • Gerð útboðs- og samningsskilmála, verklýsinga og kostnaðaráætlana tengdum viðhaldsverkefnum innan- og utanhúss.
  • Umsjón og eftirlit verklegra framkvæmda.
  • Rakaskimun og kynning á niðurstöðum og tillögum að endurbótum
  • Ástandsskoðanir fasteigna, gallagreining og tillögur að endurbótum
  • Byggingaeðlisfræði bygginga
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í verkfræði, tæknifræði eða byggingarfræði
  • Iðnmenntun og/eða reynsla af byggingarframkvæmdum er kostur
  • Reynsla af áætlanagerð og stjórnun verkefna
  • Mikill áhugi á sérhæfingu innan starfssviðs
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum og samvinnu
  • Byggingastjóraréttindi eru kostur
Fríðindi í starfi
  • Góður og hollur matur í hádeginu
  • Vellíðunarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Hreyfistyrkur
  • Fæðingarstyrkur
  • Gleraugnastyrkur
  • Símastyrkur
  • Símaáskrift og heimatenging
Advertisement published29. August 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Lyngháls 4, 110 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags