

Urriðaholtsskóli - sérkennari á mið- og unglingastigi
Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ fyrir börn á aldrinum 1-16 ára. Auglýst er eftir sérkennara á mið- og unglingastig. Verið er að innleiða kennsluaðferðirnar Stýrð kennsla og fimiþjálfun.
Teymisvinna einkennir starfshætti skólans bæði á meðal nemenda og starfsmanna, svo og milli skólastiga. Gildi skólans eru: Virðing, ábyrgð og umhverfi. Starfsumhverfi er gott og lögð áhersla á að vinna eftir gagnreyndum aðferðum. Skólaárið 2026-2027 verða rúmlega 650 nemendur við skólann, þar um 530 nemendur í 1.-10. bekk.
Unnið er út frá atferlismótandi starfsháttum og er skólinn í samstarfi við Háskóla Íslands varðandi nám í hagnýtri atferlisgreiningu. Gildi skólans eru: Virðing, ábyrgð og umhverfi. Starfsumhverfi er gott og lögð áhersla á að vinna eftir gagnreyndum aðferðum.
- Vinnur að uppeldi og menntun barna samkvæmt aðalnámskrá
- Teymisvinna vegna nemenda með sérþarfir
- Einstaklingsmiðuð kennsla
- Vinnur að gerð einstaklingsnámskrár, áætlanagerð og mati á námi barna með sérþarfir í samvinnu við kennara
- Ráðgjöf til kennara og foreldra varðandi nám, kennslu og leiðir
- Aðlögun námsefni
- Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
- Framhaldsnám í sérkennslufræðum eða önnur sambærileg framhaldsmenntun æskileg
- Faglegur metnaður, frumkvæði í starfi og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Reynsla af DI og fimiþjálfun og / eða hagnýtri atferlisgreiningu æskileg
- Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
- Góð samskiptahæfni
- Reynsla af teymiskennslu æskileg
- Vera tilbúinn að fylgja stefnu skólans, að vinna með öðrum og um leið búa yfir frumkvæði og getu til að vinna sjálfstætt
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi
Icelandic























