

5 ára deild Sjálandsskóla - sérkennslustjóri
Sérkennslustjóri óskast til starfa í 5 ára deild Sjálandsskóla
Einkunnarorð skólans eru: hraust sál í heilbrigðum líkama.
Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf þar sem við leggjum áhesrlu á útinám , vettvangsferðir, hreyfingu, förum í íþróttasalinn 2x í viku, sund einu sinni í viku og jóga.
Löng starfslýsing
Sérkennslustjóri óskast til starfa í 5 ára deild Sjálandsskóla.
Einkunnarorð skólans eru: hraust sál í heilbrigðum líkama.
Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf þar sem við leggjum áherslu á útinám , vettvangsferðir, hreyfingu. Förum í íþróttasalinn 2x í viku, sund einu sinni í viku og jóga. Einnig leggjum við mikla áherslu á jákvæð samskipti, uppbyggilega orðræðu og gagnkvæma virðingu, Við viljum útskrifa nemendur sem geta sett sjálfum sér og öðrum mörk og geti sýnt sjálfum sér samkennd.
Stefna leikskólans í starfsmannahaldi er að í skólanum starfi uppeldismenntaðir starfsmenn af báðum kynjum sem hafa mikinn metnað fyrir starfi sínu
- Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólum, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans
- Hefur yfirumsjón með gerð verkefna og ber ábyrgð á gerð einstaklingsnámskráa fyrir börn sem njóta sérkennslu
- Sinni einstaka börnum og barnahópum með íhlutun
- Veitir foreldrum/forráðamönnum barna sem njóta sérkennslu stuðning, fræðslu og ráðgjöf
- Sinnir þeim verkefnum er varða sérkennslu sem yfirmaður felur honum
- Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, lögum um málefni fatlaðra, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og skólastefnu Garðabæjar
- Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi (Leyfisbréf fylgi umsókn)*
- Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum kostur
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi í leikskóla eða starfi með börnum er æskileg
- Góð samskiptahæfni
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð í vinnubrögðum
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
- Full vinnustytting sem er 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað í vetrar-, páska- og jólafrí
- Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar vegna vinnustyttingar starfsfólks
- Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánud.- fimmtud. og 7:30-16:00 á föstudögum
- Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar
- 25% stöðugildi á hverri deild vegna snemmtækrar íhlutunar
- Starfsmannaafsláttur er af leikskólagjöldum og forgangur inn í leikskóla fyrir börn stafsmanna sem búsettir eru í Garðabæ
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Icelandic




















