Vatnsendaskóli
Vatnsendaskóli
Vatnsendaskóli

Umsjónarkennari á miðstigi

Vatnsendaskóli óskar eftir umsjónarkennar á miðstigi vegna forfalla. Unnið er í teymi þriggja kennara sem sjá sameiginlega um ábyrgð á árganginum. Um er að ræða 100% starf út skólaárið 2024-2025.

Vatnsendaskóli er heildstæður grunnskóli með rúmlega 570 nemendur og 95 starfsmenn. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi við Elliðavatn. Áhersla er lögð á teymiskennslu, útikennslu og fjölbreytta kennsluhætti. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Einkunnarorð skólans eru virðing, vinátta, samvinna og skapandi starf. Góður starfsandi er í skólanum og vinnuaðstæður góðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjónarkennsla á miðstigi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennsluréttindi.
  • Faglegur metnaður og frumkvæði.
  • Góð færni í að starfa í teymi.
  • Þolinmæði og mikil hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Þekking á kennslu með notkun rafrænna miðla æskileg.
  • Stundvísi og áreiðanleiki.
  • Góð íslenskukunnátta.
Advertisement published7. November 2024
Application deadline2. December 2024
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Funahvarf 2, 203 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags