Leikskólakennari/leiðbeinandi í Nóaborg, 36 stunda vinnuvika
Leikskólinn Nóaborg óskar eftir að ráða starfsmann í fullt starf. Framúrskarandi íslenskukunnátta er nauðsynleg.
Leikskólinn er staðsettur í Stangarholti rétt fyrir ofan Hlemm og er Klambratún í næsta nágrenni. Einkunnarorð leikskólans eru Leikum-Lærum-Njótum. Við leggjum áherslu á læsi og íslensku.
Nóaborg er fjögurra deilda leikskóli þar sem samtímis dvelja 74 börn. Húsnæðið er algjörlega endurnýjað og er vinnuaðstaða barna og starfsfólks góð.
Við leitum að áhugasömum einstaklingi með metnað og framúrskarandi íslenskukunnáttu. Starfið er laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Margrét Ólafsdóttir, leikskólastjóri í síma 693-9830 eða með tölvupósti á netfangið anna.margret.olafsdottir@reykjavik.is
Sinna þeim störfum með börnunum sem deildarstjóri felur viðkomandi.
Taka þátt í öllu starfi deildarinnar.
Reynsla af starfi með börnum æskileg
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Framúrskarandi íslenskukunnátta
36 stunda vinnuvika
Samgöngustyrkur
Heilsuræktarstyrkur
Frítt fæði
Bókasafnskort
Menningarkort
Sundkort
Forgangur á leikskólaplássi fyrir börn starfsmanna þegar þau ná 1 árs aldri