Húsasmiðjan
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan

Verkefnastjóri fasteigna og bifreiða hjá Húsasmiðjunni

Umsjónaraðili ber ábyrgð á daglegu eftirliti, viðhaldi og rekstri fasteigna og bifreiða fyrirtækisins. Starfið felur í sér skipulag, eftirfylgni, kostnaðareftirlit og samhæfingu við verktaka, þjónustuaðila og aðra hluta fyrirtækisins. Viðkomandi tryggir að allar eignir séu öruggar, vel nýttar og í góðu ásigkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Fasteignir 

  • Daglegt eftirlit með fasteignum fyrirtækisins um allt land
  • Skipulag og framkvæmd reglubundins viðhalds
  • Umsjón með viðgerðum, endurbótum og framkvæmdaverkefnum
  • Samskipti við verktaka, húsfélög, þjónustuaðila og sveitarfélög
  • Skjalavarsla fyrir teikningar, leyfi, þjónustusamninga og öryggisgögn
  • Eftirlit með brunavörnum, öryggiskerfum og lögbundnu eftirliti

Bifreiðar og vélbúnaður

  • Umsjón með bílaflota og tækjum fyrirtækisins
  • Skipulag skoðana, þjónustu, viðgerða og dekkjaskipta
  • Eftirlit með tryggingum, skráningum og akstursgögnum
  • Ákvarðanir um endurnýjun, útboð og kaup á nýjum ökutækjum
  • Umsjón með rekstrarkostnaði og eldsneytisnotkun
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í byggingartækni, verkfræðigreinum eða sambærileg reynsla af framkvæmdum
  • Reynsla af viðhaldi fasteigna og/eða verkefnastjórnun framkvæmda 
  • Þekking á bílaflotaumsjón er kostur
  • Góð tæknileg innsýn og hæfni til að lesa teikningar og skilja reglugerðir
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Ökuréttindi
  • Góð tölvukunnátta og reynsla af viðhaldskerfum er kostur
Advertisement published3. March 2026
Application deadline17. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Skútuvogur 16, 104 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags