
ÍAV
ÍAV - Íslenskir aðalverktakar hf. voru stofnaðir 31. maí 1997 með yfirtöku ákveðinna eigna og skuldbindinga, ásamt öllum verksamningum Íslenskra aðalverktaka sf. sem þá höfðu starfað sem verktakar á varnarsvæðum hérlendis allt frá 1954.
Frá þeim tíma til dagsins í dag hafa orðið verulegar breytingar á rekstri og stjórnskipulagi félagsins en félagið stefnir markvisst að því að vera alhliða fyrirtæki á öllum sviðum mannvirkjagerðar bæði hvað varðar nýsköpun, fjármögnun og framkvæmdir.
ÍAV er eitt stærsta og öflugasta verktakafyrirtæki landsins og er félagið öflugur þátttakandi á öllum sviðum byggingariðnaðar og mannvirkjagerðar hvort sem um er að ræða íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði, opinberar byggingar, jarðgangagerðar, jarðvinnu eða gatnagerð.
ÍAV hf er nú alfarið í eigu Marti Holding AG frá Sviss sem var stofnað 1922. Marti Holding á um 80 fyrirtæki víðsvegar um heim sem eru öll rekin sem sjálfstæðar einingar.

Verkefnastjóri
ÍAV leitar að áhugasömum verkefnastjóra til að ganga til liðs við hóp verkefnastjóra sem sinna fjölbreyttum verkefnum hjá félaginu.
Í 70 ár hefur ÍAV komið að hönnun og byggingu margra af mikilvægustu mannvirkjum landsins. Framkvæmdirnar eru fjölbreyttar og listinn er langur; má þar nefna íbúðarbyggingar, verslunar- og atvinnuhúsnæði, vegagerð, brýr, jarðgöng, hafnarmannvirki, virkjanir, skóla, sundlaugar, baðlón, íþróttahús og tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu.
Ef þú hefur metnað til að breyta vilja í verk, hvetjum við þig til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Undirbúningur, skipulagning og áætlanagerð í framkvæmdaverkefnum
- Gerð og rekstur samninga við undirverktaka og birgja
- Gerð kostnaðaráætlana, upplýsingagjöf um framvindu og skýrslugerð
- Gerð verkáætlana og aðfangaáætlana ásamt eftirfylgni
- Samskipti við hagsmunaaðila, s.s. verkkaupa, eftirlit, hönnuði og opinbera aðila
- Ábyrgð á rekstri og framkvæmd viðkomandi verkefnis
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af verklegum framkvæmdum
- Verk- eða tæknifræði menntun
- Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teym
- Framúrskarandi samskipta- og skipulagsfærni
- Færni í munnlegri og skriflegri íslensku og ensku
Advertisement published19. February 2026
Application deadline20. March 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Sumarstörf á þróunar- og þjónustusviði
Vegagerðin

Sumarstörf á Vestursvæði: þjónustudeild og tæknideild
Vegagerðin

Gagnaverkfræðingur
Skatturinn

Deildarstjóri Eignastýringar
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Fjármála- og rekstrarstjóri
Brunnur Ventures

Stöðvarstjóri Mývatnssvæðis
Landsvirkjun

Deildarstjóri verkefnastjórnunar
Umhverfis- og skipulagssvið

Söludrifinn starfsmaður í sölu og afgreiðslu óskast
Málmsteypan

Verkefnastjóri á dreifingarsviði í sumarafleysingar
Olíudreifing - Dreifing

Hugbúnaðarsérfræðingur / Software Developer
Íslandsbanki

Senior Customer Solution Architect
PLAIO

Tæknilegur vörustjóri
Arion banki