Skatturinn
Skatturinn

Gagnaverkfræðingur

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum sérfræðingi á sviði gagnaverkfræði (Data Engineer) á upplýsingatæknisvið í höfuðstöðvum Skattsins í Katrínartúni í Reykjavík.

Skatturinn er framsækinn vinnustaður sem gegnir lykilhlutverki við tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga. Með virku eftirliti, rannsóknum og tollgæslu stuðlum við að jafnræði og virkri samkeppni og vernd við samfélagið. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hanna, þróa og viðhalda ETL/ELT ferlum og gagnapípum.
  • Byggja og reka gagnainnviði sem styðja við uppbyggingu á vöruhúsum gagna.
  • Umbreyta, hreinsa og móta gögn þannig að þau séu aðgengileg og nýtanleg fyrir greiningu og rekstur.
  • Tryggja rekjanleika, gagnagæði og öryggi gagna í gegnum allan líftíma þeirra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í verkfræði, tölvunarfræði eða skyldra greina
  • Viðbótarmenntun eða sérhæfing í gagnavísindum er kostur
  • Reynsla af forritun (SQL eða sambærilegt)
  • Þekking á Python er kostur
  • Reynsla af ETL/ELT verkfærum (Airflow eða sambærilegt)
  • Þekking á uppbyggingu gagnavöruhúsa
  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu mál
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð 
  • Hreint sakavottorð
Advertisement published27. February 2026
Application deadline9. March 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Katrínartún 6
Type of work
Professions
Job Tags