Arion banki
Arion banki
Arion banki

Tæknilegur vörustjóri

Vegna umfangsmikilla verkefna leitum við að tæknilegum vörustjórum. Tæknilegir vörustjórar eru þátttakendur í þverfaglegum vöruþróunarteymum Arion og spila þeir stórt hlutverk í samspili vöru, ferla og tækni. Í því felst m.a. utanumhald á notendasögum tækniþróunar, aðkoma að rekstri, greiningar á kröfum stærri verkefna og samskipti við birgja. Tæknilegur vörustjóri vinnur náið með vörustjórum, tækniteymum og öðrum hagaðilum sem koma að vöruþróun og rekstri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í mótun og skipulagningu stærri verkefna
  • Tæknileg forgangsröðun lítilla og meðalstórra verkefna
  • Ræða og miðla tæknilegri sýn lausna í þverfaglegu samstarfi innan Arion
  • Skipulagning á þeirri hugbúnaðarþróun sem er í forgangi hverju sinni
  • Gerð kostnaðaráætlana og eftirfylgni í tengslum við aðkeypta þjónustu
  • Samskipti við birgja
  • Faglegt starf í hópi tæknilegra vörustjóra
  • Tæknileg skjölun
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi s.s. tölvunarfræði, viðskiptafræði, verkfræði eða sambærilegt
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, drifkraftur og skipulagshæfni
  • Áhugi á að fylgjast með nýjungum og þróun í smíði hugbúnaðar
  • Góð þekking og reynsla af þróun hugbúnaðar í teymi
  • Gott vald á rituðu máli, bæði íslensku og ensku
  • 1-3 ára reynsla af störfum í greiningu eða sem vörustjóri er kostur
Advertisement published18. February 2026
Application deadline1. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags