Veðurstofa Íslands
Veðurstofa Íslands
Veðurstofa Íslands

Sérfræðingur í Kerfisstjórnun

Veðurstofa Íslands leitar að drífandi og framsýnum einstaklingi í stöðu sérfræðings í kerfisrekstri.

Leitað er eftir einstakling sem hefur áhuga á að vera hluti af hvetjandi liðsheild sem hefur það hlutverk að vakta og rannsaka náttúruöfl landsins og efla þannig öryggi samfélagsins í ört breytilegum heimi. Þessu hlutverki sinnir starfsfólk Veðurstofunnar með gagnasöfnun, varðveislu gagna, og miðlun upplýsinga byggða á áreiðanlegri upplýsingatækni.

Viðkomandi þarf að hafa góðan tæknilegan bakgrunn, geta sinnt almennri upplýsingatækniþjónustu og unnið eftir verklagi í ISO vottuðu umhverfi. Viðkomandi mun starfa á Upplýsingatæknisviði Veðurstofu Íslands

Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið. Á Veðurstofunni starfa um 160 manns með fjölbreytta menntun og starfsreynslu sem spannar mörg fræðasvið vísinda og sérfræðiþekkingar. Auk þess starfa um 50 manns við athugana-og eftirlitsstörf víðsvegar um landið. Nánari upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar www.vedur.is

Helstu verkefni og ábyrgð

Rekstur miðlægra og sérhæfðra kerfa Veðurstofunnar .s.s. innleiðing, viðhald, eftirlit og ráðgjöf ásamt tilfallandi verkefnum. Viðkomandi sérhæfir sig í ákveðnum kerfum, en hefur rekstrarlega þekkingu á sem flestum kerfum upplýsingatækni.

Þátttaka í eða framkvæmd úrbótaverkefna, ásamt vali og innleiðingu tæknilausna hvers tíma. Regluleg áætlanagerð um rekstur kerfa ásamt samskiptum við innri sem ytri aðila.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nám í tölvunarfræði, kerfisstjórnun og/eða farsæl reynsla sem nýtist í starfi
  • Gerð er krafa um reynslu af vinnu og rekstri þjóna í Linux umhverfi
  • Góð þekking á m.a. VMWare raunvélaumhverfi, gagnageymslulausnum
  • Þekking á Docker er kostur
  • Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni
  • Frumkvæði og metnaður í starfi, lausnarmiðuð hugsun og áhugi til að tileinka sér nýjungar
  • Greiningarhæfni í flóknum kerfisrekstri
  • Hæfni til að miðla upplýsingum
  • Þekking á Puppet, Ansible, netkerfum eða eftirlitskerfum kostur

Í gildunum Veðurstofunnar er lögð áhersla á að vera áreiðanleg, samvinnufús og hugvitsöm. Ráðningar taka mið af þessum gildum.

Advertisement published27. February 2026
Application deadline16. March 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Bústaðavegur 9, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags