
OK
OK samanstendur af gríðarlega öflugu starfsfólki, en þar sameinast eldmóður, reynsla og þekking starfsfólks sem setur þarfir viðskiptavina í forgang.
OK hefur að skipa öflugu teymi reyndra sérfræðinga á flestum sviðum upplýsingatækni með langa reynslu af ráðgjöf, rekstri, þjónustu og innleiðingu lausna hjá flestum af stærstu og kröfuhörðustu fyrirtækjum og stofnunum landsins ásamt stórum erlendum viðskiptavinum.
Vinnustaðurinn er krefjandi og skemmtilegur þar sem starfsmenn eru hvattir til að vera sjálfstæðir í starfi og hafa áhrif á eigið starfsumhverfi.
Hjá OK starfar samhentur hópur fólks og er kapp lagt á að viðhalda góðum starfsanda, en það hefur skilað sér í ánægðu starfsfólki sem hefur fengið tækifæri til að vaxa og dafna í leik og starfi.
OK hlaut viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2024 sem veitt er fyrirtækjum fyrir framúrskarandi vinnuumhverfi og starfsanda, en fyrirtækið hefur hlotið þá viðurkenningu fjögur ár í röð.

Netsérfræðingur
OK leitar að öflugum netsérfræðingi með haldgóða reynslu.
Við leitum að einstakling sem hefur brennandi áhuga á netmálum og almennu upplýsingaöryggi til að bætast í hópinn og hjálpa okkur í spennandi netverkefnum hjá viðskiptavinum OK. Starfið tilheyrir Kjarnalausnum OK og felst í ráðgjöf og þjónustu við viðskiptavini ásamt uppsetningum og verkefnavinnu.
Hjá OK starfar fjölbreyttur hópur fólks og hvetjum við öll sem uppfylla hæfnikröfur og hafa áhuga á starfinu til að sækja um, óháð kyni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almennur rekstur á netkerfum viðskiptavina og rekstur kjarnanets OK
- Samskipti við viðskiptavini og eftirfylgni þjónustumála, skjölun kerfa og almennar úttektir
- Ráðgjöf við hönnun netkerfa, val á búnaði og lausnum fyrir viðskiptavini ásamt uppsetningum
- Aðstoða viðskiptavini við að leysa úr tæknilegum vandamálum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Haldgóð reynsla skilyrði, a.m.k. 5 ár af rekstri netlausna.
- Stúdentspróf, iðnnám, tæknileg menntun eða háskólapróf sem nýtist í starfi æskileg.
- Formlegar tæknigráður t.d. NSE, CCNA, CCNP, Network+ og CWNA eru æskilegar.
- Reynsla af því að vinna í þjónustukerfum, þekking og reynsla á skjölun, áætlanagerð og úttektarskýrslur.
- Áhugi á forritun og sjálfvirknivæðingu er kostur.
- Góð íslensku og ensku kunnátta.
- Hreint sakavottorð er skilyrði
- Bílpróf er skilyrði
Fólkið sem við leitum að:
- Hefur ríka öryggisvitund og áhuga á öryggismálum.
- Á gott með samskipti og tilbúið til að vinna í þéttum hóp ráðgjafa.
- Hefur áhuga á því að sækja sér þekkingu, gráður og meiri þjálfun.
Advertisement published20. February 2026
Application deadline8. March 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Skútuvogur 2, 104 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Kerfisstjóri á upplýsingatæknideild
Vegagerðin

Sérfræðingur í Kerfisstjórnun
Veðurstofa Íslands

Sérfræðingur í rekstri upplýsingatæknikerfa
Míla hf

Leitum að kerfisstjóra í vef- og hýsingardeild
TACTICA

IT Support Administrator
Embla Medical | Össur

Markaðsstjórn með áherslu á leitarvélabestun, netauglýsingar og samfélagsmiðla
Þorbergsson og Loftsdóttir sf.

Blöndunarstjóri - Akureyri
Möl og Sandur

NOC Specialist - Summer Position
Rapyd Europe hf.

POS Customer Support - Summer Position
Rapyd Europe hf.

Sérfræðingur í upplýsingatækni og kerfisrekstri
TACTICA

Ráðgjafi tæknilausna
Sýn

Sérfræðingur í Microsoft lausnum
Advania