TACTICA
TACTICA
TACTICA

Leitum að kerfisstjóra í vef- og hýsingardeild

TACTICA leitar að metnaðarfullum kerfsisstjóra sem hefur sterka þekkingu á WordPress og PHP ásamt góðum skilningi á rekstri vefþjóna. Starfið snýst um þróun og viðhald WordPress vefja og felur einnig í sér daglega umsjón og eftirlit með hýsingarumhverfi í samstarfi við rekstrarsvið.

Þetta er fjölbreytt starf þar sem við sinnum öllu frá forritun og bilanaleit til öryggismála og samskipta við viðskiptavini.

Ef þú ert einhver sem brennur fyrir veftækni og er að leita að starfi þar sem þú færð tækifæri til að læra eitthvað nýtt í hverri viku þá viljum við heyra frá þér!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • WordPress og forritun:

    • Viðhald og úrræðaleit á WordPress vefjum (þemu, viðbætur, sérsniðin virkni)
    • PHP forritun og bilanaleit
    • Vírushreinsa og vernda WordPress vefi
    • Greining á orsökum hægagangs á vefjum

    Umsjón með hýsingarumhverfi:

    • Eftirlit með öryggi og afköstum vefþjóna (Linux)
    • Umsjón með afritunum, eldveggjum og minnisúthlutun
    • Eftirlit með DNS, SSL/TLS vottorðum og tölvupóstþjónustu (SPF/DKIM/DMARC)
    • Viðbrögð við netárásum og óæskilegum scraping
    • Þátttaka í sjálfvirkni á innviðaverkefnum (Terraform, Ansible eða sambærilegt)
    • Flutningur vefja á milli þjóna

    Annað:

    • Þjónusta og samskipti við viðskiptavini
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð þekking á PHP og MySQL
  • Sterk reynsla af WordPress — þemu, viðbótum og sérsniðinni þróun
  • Góður skilningur á Linux vefþjónum og hýsingarumhverfi
  • Þekking á cPanel og/eða Plesk er kostur
  • Áhugi á sjálfvirkniverkfærum (Terraform, Ansible eða sambærilegt)
  • Þekking á HTTP caching (Varnish, Redis, OPcache) er kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Skipulögð vinnubrögð og hæfni til að vinna sjálfstætt
Fríðindi í starfi
  • Sveigjanlegur vinnutími og möguleiki á fjarvinnudögum (hybrid fyrirkomulag)
  • Tækifæri til að þróast í öflugu tækniumhverfi
  • Skemmtilegt og óþvingað vinnuumhverfi
  • Samgöngustyrkur
  • Farsímaáskrift og nettenging
  • Aðgengi að heitum mat í hádeginu
  • Orkudrykkir eða sódavatn, við eigum það allt!
Advertisement published27. February 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Backend developmentPathCreated with Sketch.LinuxPathCreated with Sketch.PHPPathCreated with Sketch.SQLPathCreated with Sketch.Web development
Professions
Job Tags