
Skatturinn
Skatturinn fer með álagningu og innheimtu skatta, gjalda og tolla auk þess að sinna eftirliti með skattskilum og viðskiptum og flutningum yfir landamæri.
Gagnagreinandi
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum sérfræðingi á sviði gagnagreiningar (Data Analyst) á upplýsingatæknisvið í höfuðstöðvum Skattsins í Katrínartúni í Reykjavík.
Skatturinn er framsækinn vinnustaður sem gegnir lykilhlutverki við tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga. Með virku eftirliti, rannsóknum og tollgæslu stuðlum við að jafnræði og virkri samkeppni og vernd við samfélagið. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Greina gögn og umbreyta þeim í hagnýta innsýn sem styður við stefnumótun og ákvarðanatöku.
- Hanna, þróa og viðhalda skýrslum, mælaborðum og lykilmælikvörðum.
- Safna, hreinsa og sannreyna gögn í samstarfi við önnur svið.
- Túlka niðurstöður og setja þær fram með skýrum hætti, munnlega og skriflega.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði verkfræði, tölvunarfræði, tölfræði eða skyldra greina.
- Góð kunnátta í SQL og/eða Python
- Reynsla af BI-verkfærum (t.d. Power BI) er kostur
- Góð greiningarhæfni og færni í miðlun upplýsinga
- Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu mál
- Góð færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð
- Hreint sakavottorð
Advertisement published27. February 2026
Application deadline9. March 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Katrínartún 6
Type of work
Skills
Data analysisPythonSQL
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (10)

Gagnaverkfræðingur
Skatturinn

BUSINESS & E-COM ANALYST
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

User Acquisition Specialist
CCP Games

Publishing Intern
CCP Games

Sérfræðingur / Greiningaraðili
Brunnur Ventures

Sérfræðingur
MAR Advisors

Gagnasérfræðingur (Data Engineer / Data Specialist)
Arctic Adventures

Gagnasérfræðingur
Sýn

Sérfræðingur í vörustýringu (e. Allocation Specialist)
66°North

Strategy & Transformation Manager
Icelandair