Málmsteypan
Málmsteypan
Málmsteypan

Söludrifinn starfsmaður í sölu og afgreiðslu óskast

Við erum rótgróið og öflugt fyrirtæki á sviði lagnavara og innviða þar sem þjónusta, fagmennska og áreiðanleiki eru leiðarljós í öllu okkar starfi. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á sölu og vill veita framúrskarandi þjónustu ásamt því að byggja upp og styrkja traust og langvarandi viðskiptasambönd. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og býður upp á raunhæf tækifæri til ábyrgðar og vaxtar í öflugu teymi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta við viðskiptavini og fagleg ráðgjöf
  • Byggja upp og viðhalda sterkum og traustum viðskiptasamböndum
  • Tilboðsgerð og eftirfylgni
  • Almenn afgreiðsla og sala
  • Þátttaka í sölutengdum verkefnum og markaðsstarfi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Áhugi og metnaður í sölu og þjónustu á fyrirtækjamarkaði
  • Mjög góðir samskiptahæfileikar og lausnamiðað viðhorf
  • Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Tækniþekking sem nýtist í starfi – iðn- eða tæknimenntun kostur
  • Mikill kostur að hafa þekkingu á hitaveitu- og fráveitukerfum
  • Þekking og áhugi á byggingamarkaði kostur
  • Ökuréttindi (vinnuvélaréttindi kostur)
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði, bæði í ræðu og riti
Fríðindi í starfi

Við bjóðum

  • Fjölbreytt og lifandi starf í öflugu teymi
  • Tækifæri til að hafa áhrif og þróast í starfi
  • Jákvætt og metnaðarfullt starfsumhverfi
  • Samkeppnishæf kjör og árangurstengt bónuskerfi
Advertisement published26. February 2026
Application deadline31. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Miðhraun 6, 210 Garðabær
Type of work
Professions
Job Tags