Vörumerking ehf
Vörumerking ehf
Vörumerking ehf

Söluráðgjafi

Vörumerking leitar að öflugum og metnaðarfullum söluráðgjafa sem vill taka virkan þátt í vexti og þróun fyrirtækis sem er leiðandi á sínu sviði.

Við sérhæfum okkur í merkingarlausnum fyrir íslenskan atvinnurekstur – frá einföldum merkimiðum yfir í heildarlausnir fyrir framleiðslu, lager og verslanir. Við vinnum með öflug alþjóðleg vörumerki og leggjum áherslu á fagmennsku, hraða og þjónustu sem skilar raunvirði fyrir viðskiptavini.

Vörumerking er BRCGS gæðavottað fyrirtæki.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hlutverk

  • Virk öflun nýrra viðskiptavina
  • Umsjón og þróun viðskiptasambanda
  • Ráðgjöf um merkingar- og prentlausnir
  • Tilboðagerð og eftirfylgni
  • Samstarf við framleiðslu og innkaup
  • Þátttaka í þróun nýrra lausna með framleiðslu og gæðateymi
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Hefur reynslu af sölu, helst í iðnaði eða tæknilegri starfsemi (B2B)
  • Er tilbúinn til að fara um landið og afla nýrra viðskipta og þjónusta núverandi viðskiptavini
  • Er drífandi og árangursmiðaður
  • Getur unnið sjálfstætt og tekið ábyrgð
  • Hefur góða samskipta- og samstarfshæfni
  • Hefur áhuga á framleiðslu, tækni og lausnamiðaðri nálgun
  • Hefur drifkraft og útsjónasemi til að ráðleggja viðskiptavinum hvernig hægt er að nýta merkingar og umbúðir í markaðslegum tilgangi til að skara fram úr í samkeppni og auka virði fyrir viðskiptavini
  • Hefur gott vald á íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
  •  Styrkur til heilsueflingar
  •  Öflugt starfsmannafélag
  •  Mötuneyti
  •  Hleðslustöðvar fyrir ökutæki og læst hús fyrir hjól
Advertisement published23. February 2026
Application deadline9. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Suðurhraun 6, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Market analysisPathCreated with Sketch.MarketingPathCreated with Sketch.Non smokerPathCreated with Sketch.NeatnessPathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.Business relations
Professions
Job Tags