Stefna hugbúnaðarhús
Stefna hugbúnaðarhús
Stefna hugbúnaðarhús

Stefna leitar að öflugum söluráðgjafa.

Stefna leitar að öflugum söluráðgjafa.

Ert þú drífandi, hefur gaman af því að kynnast nýju fólki og brennur fyrir því að selja snjallar tæknilausnir? Við hjá Stefnu stækkum söluteymið okkar og leitum að öflugum liðsauka sem vill taka þátt í að móta stafræna framtíð íslenskra fyrirtækja og stofnana.

Hjá Stefnu trúum við á „mannlega nálgun á tæknilegar lausnir“. Okkar sérstaða felst í góðum undirbúningi og djúpum skilningi á þörfum viðskiptavina, því við teljum að baki hverri góðri lausn sé gott samtal.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið:

  • Umsjón með sölu á fjölbreyttum hugbúnaðar- og veflausnum fyrirtækisins.

  • Öflun nýrra viðskiptavina ásamt því að efla tengsl við núverandi viðskiptavini.

  • Ráðgjöf og þarfagreining í samstarfi við öflugt teymi sérfræðinga. 

  • Tilboðsgerð, eftirfylgni og samningagerð.

Menntunar- og hæfniskröfur

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sölu og viðskiptatengslum er skilyrði. 

  • Reynsla úr hugbúnaðar- eða upplýsingatæknigeiranum er kostur.

  • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði

  • Góður skilningur á tækni, viðskiptaferlum og snjöllum lausnum.

Fríðindi í starfi

Við bjóðum:

  • Fjölbreytt starfsumhverfi þar sem engir tveir dagar eru eins.

  • Vinnustað sem leggur mikið upp úr fjölskylduvænu umhverfi þar sem reynt er að samræma vinnu og einkalíf.

Viltu vera með okkur í liði?                      

Advertisement published25. February 2026
Application deadline10. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Síðumúli 35, 108 Reykjavík
Glerárgata 34, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags