
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan er meðal stærstu verslunarfyrirtækja landsins og hluti af Bygma Gruppen A/S. Bygma rekur fjölmargar byggingavöruverslanir í Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum og á Grænlandi. Ásamt því rekur fyrirtækið nokkur heildsölufyrirtæki á byggingavörumarkaði í Danmörku.
Húsasmiðjuverslanir eru 16 talsins og eru Blómavalsútibú í sjö þeirra. Jafnframt er rafiðnaðarverslunin Ískraft með fjögur útibú.
Hjá Húsasmiðjunni starfa um 500 starfsmenn vítt og breytt um landið sem hafa margskonar bakgrunn eins og pípari, blómaskreytir, bókari, smiður, viðskiptafræði, grafískur hönnuður, múrari og fleira og fleira.
Húsasmiðjan býður upp á lifandi starfsumhverfi og frábæran starfsanda. Við leggjum mikla áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.

Verkfæradeild Húsasmiðjunnar í Reykjanesbæ
Vilt þú vinna á lifandi og skemmtilegum vinnustað?
Í nýrri og glæsilegri verslun Húsasmiðjunnar í Reykjanesbæ leitum við að öflugum og þjónustulunduðum söluráðgjafa með góða þekkingu og brennandi áhuga á verkfærum, skrúfum og festingum.
Viðkomandi mun sjá um og þjónusta fagfólk og fólk í framkvæmdum – og bera ábyrgð á verkfæradeild ásamt skrúfu- og festingadeild.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf og sala til fagfólks og einstaklinga í framkvæmdum
- Afgreiðsla pantana
- Umsjón með verkfæradeild og skrúfu- og festingadeild (framsetning, röðun og daglegur rekstur)
- Aðstoð við vöruval og lausnir tengdar verkfærum, skrúfum og festingum
- Vinna með sterku vöruframboði og þekktum vörumerkjum, m.a. DeWalt, Milwaukee, Makita, Stanley og fleiri
- Almenn umhirða verslunar
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi - iðnmenntun kostur
- Er með framúrskarandi þjónustulund og lausnamiðað hugarfar
- Reynsla af sölustörfum er kostur
- Þekking á verkfærum, festingum og skrúfum er mikill kostur
- Hefur brennandi áhuga á verkfærum – það er skilyrði
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Metnaður til að takast á við krefjandi verkefni
- Stundvísi, jákvæðni og heiðarleiki í starfi
- Gott vald á íslensku
- Almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
- Heilsuefling, s.s. heilsufarsskoðun, bólusetning, aðgangur að sálfræðiþjónustu, heilsueflandi fræðsla.
- Aðgangur að orlofshúsum.
- Ýmsir styrkir, s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur og fræðslustyrkur.
- Afsláttarkjör í verslunum okkar.
Advertisement published16. February 2026
Application deadline12. March 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Fitjar 2, 260 Reykjanesbær
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (5)
Similar jobs (12)

Gallup - Viðskiptastjóri
Gallup

Starfsmaður í uppsetningardeild
Öryggisgirðingar ehf

Viðskiptastjóri
Kælitækni ehf

ICEWEAR Garn óskar eftir starfsfólki í Fullt starf/hlutastarf
ICEWEAR

Sölufulltrúi í Skútuvogi
Slippfélagið ehf

Viðskiptastjóri
Terra Einingar

Maintenance manager
Borealis Data Center ehf.

Þjónustusérfræðingur í Fiski
JBT Marel

Starfsmaður í söludeild SS
SS - Sláturfélag Suðurlands

50% starf - A4 Kringlan
A4

Bílabúðin / Stál og stansar – sölufulltrúi
Bílabúðin / Stál og stansar ehf.

Söluráðgjafi varahluta
Fastus