Sýn
Sýn
Sýn

Rekstrarstjóri þjónustu

Rekstrarstjóri þjónustu gegnir lykilhlutverki fyrir þjónustuna og ber ábyrgð á að hún sé í samræmi við þjónustuloforð fyrirtækisins og þarfir viðskiptavina. Hlutverkið spannar þátttöku í stefnumótun, rekstur, leiðir umbætur og samvinnu milli eininga til að tryggja sem bestu þjónustuupplifun og árangur fyrir bæði viðskiptavini og félagið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skilgreina kerfislegar þarfir þjónustunnar út frá þjónustuloforði og raunverulegum þörfum viðskiptavina.
  • Tryggja að þjónustan styðji við stefnu og gildi félagsins.
  • Gæta að kerfislegum hagsmunum þjónustunnar í ákvörðunum og forgangsröðun.
  • Skilgreina, viðhalda og þróa þjónustuferla og verklag miðað við þarfir og upplifun viðskiptavina.
  • Tryggja að verkferlar séu virtir og umbótaverkefni keyrð áfram.
  • Setja fram mælanleg markmið fyrir þjónustusviðið í samræmi við gildi félagsins.
  • Mæla og greina þjónustuánægju, þjónustustig, frammistöðu og skilvirkni.
  • Skila reglulegum árangursskýrslum ásamt frávikum og leggja til aðgerðir til úrbóta.
  • Hafa frumkvæði að tillögum um breytingar á áherslum eða nýjum mælikvörðum þegar þörf krefur.
  • Taka virkan þátt í stefnumótun og þróun nýrra lausna í samstarfi við vörustýringu og aðra lykilaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Áhugi og færni á tækni og nýjungum
  • Greiningarhæfni/talnalæsi og nákvæmni
  • Metnaður og frumkvæði
  • Góð ensku- og tölvukunnátta er nauðsynleg
  • Háskólapróf eða önnur sambærileg menntun æskileg
Fríðindi í starfi

Hvað höfum við að bjóða þér?

  • Frábæra vinnufélaga
  • Framúrskarandi vinnuaðstöðu
  • Spennandi verkefni
  • Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
  • Möguleika á starfsþróun
  • Mötuneyti á heimsmælikvarða
  • Internet- og farsímaáskrift
  • Streymisveitu Sýnar og Viaplay
  • Árlegan heilsustyrk
  • Árlegan símtækjastyrk
  • Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
  • Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu
Advertisement published24. February 2026
Application deadline9. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags