
Sýn
Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.
Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.

Ert þú íþróttafíkill með mikinn áhuga á fjölmiðlum? Þá erum við að leita að þér
Íþróttadeild Sýnar leitar að sumarstarfsmanni. Starfið felst aðallega í að vinna sjónvarpsfréttir fyrir Sýn og veffréttir fyrir Vísi.
Á fréttastofunni starfar fjölbreyttur hópur fólks sem hefur mikinn áhuga á málefnum líðandi stundar og metnað fyrir vönduðum fréttaflutningi. Fréttir eru unnar í fjölbreyttri framleiðslu sem einkennist af frumkvæði, sköpunarkrafti og áræðni.
Sjötíu prósent landsmanna fylgjast grannt með fréttum okkar á hverjum degi. Allar fréttir fréttastofunnar birtast á Vísi, mest lesna fréttavef landsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Yfirgripsmikil þekking á íþróttum
- Reynsla af blaða- og fréttamennsku er kostur
- Mjög gott vald á íslenskri tungu
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og vandvirkni
- Geta til að vinna hratt og örugglega undir álagi
- Góð almenn tölvukunnátta
- Hæfni í mannlegum samskiptum og öryggi í framkomu
Fríðindi í starfi
Hvað höfum við að bjóða þér?
- Frábæra vinnufélaga
- Framúrskarandi vinnuaðstöðu
- Spennandi verkefni
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
- Möguleika á starfsþróun
- Mötuneyti á heimsmælikvarða
- Internet- og farsímaáskrift
- Streymisveitu Sýnar og Viaplay
- Árlegan heilsustyrk
- Árlegan símtækjastyrk
- Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
- Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu
Advertisement published18. February 2026
Application deadline2. March 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
Article writingSport journalism
Professions
Job Tags