Veitur
Veitur
Veitur

Verkefnastjóri fjárfestinga

Viltu leiða fjárfestingarverkefni sem móta grunninnviði u.þ.b. 70% landsmanna? Með því hefur þú raunveruleg áhrif á sjálfbæra þróun samfélagsins næstu áratugi.

Framundan eru umfangsmiklar fjárfestingar í vatnsmiðlum hjá Veitum. Fjárfestingaáætlun félagsins gerir ráð fyrir milljarða uppbyggingu til ársins 2030 til að mæta mikilli fólksfjölgun, endurnýja dreifi- og stofnkerfi, byggja upp ný svæði og styrkja jarðhitaleit. Viðkomandi verður hluti af teymi innan fjárfestingardeildar Vatnsmiðla, sem hefur það hlutverk að tryggja skilvirka verkefnastýringu í samræmi við stefnu Veitna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýra fjárfestingarverkefnum í samræmi við verksamninga, tíma- og kostnaðaráætlanir
  • Hafa umsjón með hönnunargögnum, útboðum og verklýsingum
  • Tryggja leyfi, verksamninga og aðföng til verkefna
  • Skila verkefnum á faglegan hátt og tryggja góð samskipti við hagaðila á öllum stigum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þekking og árangursrík reynsla í verkefnastýringu, reynsla af framkvæmdarverkefnum er kostur
  • Hæfni í samningastjórnun og geta til að halda utan um kostnaðaráætlanir og framvindu verkefna
  • Frumkvæði, framúrskarandi samskiptahæfni og sjálfstæði í starfi
  • Skipulagsfærni og sterk hæfni í framsetningu upplýsinga
  • Drifkraftur og metnaður til að ná árangri
  • Áhugi á uppbyggingu innviða, umhverfismálum og umbótum
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Hvers vegna Veitur?

Veitur eru framsækið þjónustufyrirtæki sem tengja samfélagið við rafmagn, hita, hreint vatn og fráveitu. Með nýsköpun og samstarfi veitum við lífsgæði til framtíðar. Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og þjónustar ríflega 70% landsmanna. Við setjum viðskiptavininn í fyrsta sæti og erum stöðugt að bæta okkur og finna leiðir til þess að þjónusta viðskiptavini okkar enn betur.

Við bjóðum fjölbreytt og stuðningsríkt vinnuumhverfi þar sem áhersla er lögð á framsýni, hagsýni, heiðarleika og frumkvæði. Við trúum á að fjölbreytileiki leiði til betri árangurs og hvetjum öll sem uppfylla grunnskilyrði til að sækja um, óháð því hvort þau haka í öll boxin.

Til að vita meira um hvernig er að starfa hjá Veitum er tilvalið að heimsækja heimasíðuna okkar, www.veitur.is/vinnustadurinn.

Aðrar upplýsingar

Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2026. Nánari upplýsingar veita Eva Stefánsdóttir deildarstjóri fjárfestinga í dreifikerfi, á netfanginu [email protected], og Anna Berglind Sigurðardóttir deildarstjóri fjárfestinga í búnaði, á netfanginu [email protected]

Advertisement published2. March 2026
Application deadline15. March 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ContractsPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Project management
Work environment
Professions
Job Tags