Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Þjónustufulltrúi - Geðheilsumiðstöð barna HH

Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi til að koma til liðs við okkur.

Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða þjónustufulltrúa til starfa hjá Geðheilsumiðstöð barna. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt í starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun. Um er að ræða 50-100% ótímabundið starf og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar eða eftir nánara samkomulagi.

Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga ásamt því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna frá 0-5 ára. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þjónustufulltrúi starfar í stoðteymi GMB sem vinnur þvert á önnur teymi og þjónustar þau. Verkefni þjónustufulltrúa eru fjölbreytt, til dæmis:

·         Símsvörun og móttaka skjólstæðinga 

·         Vinnsla, skönnun og útsending gagna

·         Móttaka gagna og skráning

·         Svörun erinda í tölvupósti

·         Ljósritun, frágangur og útsending námsgagna

·         Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar 

·         Önnur tilfallandi verkefni 

Menntunar- og hæfniskröfur
  •  Nám sem nýtist í starfi
  •  Reynsla af sambærilegu starfi og/eða skrifstofustarfi æskileg
  •  Reynsla af Sögukerfi er æskileg
  •  Reynsla af Heilsuveru er æskileg
  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  •  Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta, bæði rituð og töluð
  • Góð almenn enskukunnátta er æskileg
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • samgöngustyrkur
Advertisement published22. November 2024
Application deadline2. December 2024
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Vegmúli 3, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags