Hjúkrunarfræðingur - Heimahjúkrun HH
Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) leitar að hjúkrunarfræðingi í 30-80% starf. Um er að ræða ótímabundið starf í vaktavinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ, Mosfellsbæ og Hafnarfirði og er með aðsetur í nýju og stórglæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf er haft að leiðarljósi. Einstaklingsmiðuð heimahjúkrun er sérsniðin að þörfum hvers og eins.
Ný og spennandi tækifæri eru til starfsþróunar innan HH, þar sem hjúkrunarfræðingum stendur til boða að þróa sig í starfi s.s. starfsþróunarár og sérnám í heilsugæsluhjúkrun. Heimahjúkrun leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Hjúkrunarfræðingur vinnur náið með teymisstjóra. Starfssvið hjúkrunarfræðings í heimahjúkrun er að veita víðtæka hjúkrun í heimahúsum vegna langvinnra sjúkdóma, andlegrar og líkamlegrar skerðingar. Hjúkrunarfræðingur styður við einstaklinga og aðstandendur þeirra ásamt því að skipuleggja og veita þá hjúkrun sem þörf er á hverju sinni. Hann er einnig í samskiptum og samvinnu við aðrar sjúkrastofnanir og heilbrigðisstéttir með hagsmuni skjólstæðings að leiðarljósi.
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Fjölbreytt reynsla af hjúkrun er æskileg
- Faglegur metnaður og áhugi á teymisvinnu
- Reynsla og áhugi á geðhjúkrun kostur
- Mikil samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Sjálfstæði í starfi
- Góð almenn tölvuþekking
- Gilt ökuleyfi
- Hreint sakavottorð
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Heilsueflingarstyrkur
- Samgöngustyrkur