

Þjónustufulltrúi á Akureyri - sumarstarf
Pósturinn leitar að kraftmiklum og jákvæðum þjónustufulltrúa til starfa hjá þjónustuveri Póstsins á Akureyri.
Starfið felur í sér að veita viðskiptavinum Póstsins margvíslega þjónustu eins og að taka á móti símtölum, sinna netsamtali, veita almennar upplýsingar, ráðgjöf, meðhöndla ábendingar frá viðskiptavinum og önnur tilfallandi verkefni.
Um er að ræða sumarstarf á tímabilinu 15. maí til 15. ágúst.
Vinnutíminn er frá klukkan 09:00 til 17:00 mánudaga til fimmtudaga og frá 09:00 til 16:00 á föstudögum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð almenn tölvukunnátta
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Reynsla af þjónustustörfum er æskileg
- Lausnamiðuð hugsun
- Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl. Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Fanney Bergrós Pétursdóttir, þjónustustjóri, í tölvupósti - [email protected].
Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í forgrunni. Pósturinn leggur sitt lóð á vogarskálar til að stuðla að sjálfbærni og hefur uppfyllt öll markmið Grænna skrefa. Pósturinn er jafnlaunavottað fyrirtæki.
English
Icelandic










