Pósturinn
Pósturinn
Pósturinn

Borgarnes - sumarstarf

Pósturinn leitar að starfsmanni í flokkun, dreifingu, útkeyrslu sendinga, þrif og önnur tilfallandi störf á pósthúsinu í Borgarnesi.

Vinnutími er alla virka daga kl. 8:00-16:05. Tímabil ráðningar er frá 1. júní til 21. ágúst 2026.

Hæfnikröfur:

  • Bílpróf er skilyrði
  • Sterk ábyrgðartilfinning
  • Rík þjónustulund og góð samskiptafærni
  • Lausnamiðuð hugsun og jákvætt hugarfar
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta er æskileg

Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl. Athugið að aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvefinn en ekki í tölvupósti. Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar veitir Gróa Lísa Ómarsdóttir rekstrarstjóri, [email protected]

Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í forgrunni. Pósturinn leggur sitt lóð á vogarskálar til að stuðla að sjálfbærni og hefur uppfyllt öll markmið Grænna skrefa. Pósturinn er jafnlaunavottað fyrirtæki.

Advertisement published24. March 2026
Application deadline8. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Brúartorg 4, 310 Borgarnes
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Delivery
Work environment
Professions
Job Tags