Jónar Transport
Jónar Transport
Jónar Transport

Þjónustufulltrúi í sérverkefnadeild

Jónar Transport óska eftir að ráða þjónustufulltrúa sérverkefnadeild fyrirtækisins. Í starfinu felst m.a. tilboðsgerð, utanumhald um sendingar í innflutningi og útflutningi, ásamt fjölmörgu öðru.

Við sækjumst eftir einstaklingi með mjög góða tölvukunnáttu og vinnur nákvæmt með upplýsingar og gögn. Starfshlutfall er 100%. Unnið er í dagvinnu, frá kl. 08:00-16:00 en viðkomandi þarf að hafa getu til að vinna lengur og/eða um helgar sé þess þörf. Starfið er laust frá 1. apríl 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Viðeigandi menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu
  • Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Hæfni til að vinna í teymi
  • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
  • Mjög rík þjónustulund og sveigjanleiki í starfi.
  • Góð íslenskukunnátta og enskukunnátta í mæltu og rituðu máli
  • Bílpróf

Helstu verkefni

  • Samskipti við viðskiptavini hér heima og erlendis, flutningafyrirtæki og tollayfirvöld.
  • Finna lausnir í flutningum fyrir viðskiptavini.
  • Eftirfylgni með sendingum, reikingagerð og tilfallandi verkefni.
  • Veita framúrskarandi og persónulega þjónustu við alla viðskiptavini.

Við hvetjum áhugasama einstaklinga af öllum kynjum til þess að sækja um.

Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu hjá Jónar Transport.

Advertisement published19. March 2026
Application deadline15. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Kjalarvogur 7-15, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Phone communicationPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags