Garðabær
Garðabær
Garðabær

Þjónustufulltrúi í þjónustuver Garðabæjar

Býrð þú yfir ríkri þjónustulund, samskiptahæfni og frumkvæði? Garðabær auglýsir eftir þjónustufulltrúa í fullt starf við bæjarskrifstofur Garðabæjar í Ráðhúsi bæjarins.

Þjónustufulltrúinn er hluti af þjónustuveri bæjarins sem er fyrsti snertiflötur við öll svið bæjarins þar sem ávallt er leitast við að leysa úr erindum íbúa og viðskiptavina. Þjónustuverið tilheyrir þjónustu- og þróunarsviði sem er stoðsvið annarra sviða. Þjónustufulltrúinn sinnir upplýsingagjöf og þjónustu við gesti, almennri símsvörun, skráningu gagna og móttöku fyrir öll svið bæjarins. Leitað er að einstaklingi með ríka þjónustulund, góða samskiptahæfni sem sýnir frumkvæði og yfirvegun í annasömu umhverfi. Umsækjandi þarf einnig að hafa áhuga á starfsemi sveitarfélaga, vera tilbúinn að tileinka sér nýjungar og taka að sér fjölbreytt verkefni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka og aðstoð við íbúa og aðra viðskiptavini í Ráðhúsinu
  • Upplýsingagjöf í síma, tölvupósti og öðrum miðlum
  • Skráning á gögnum og upplýsingum
  • Almenn skrifstofustörf
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun
  • Æskilegt að hafa reynslu af almennum skrifstofustörfum
  • Góð tölvukunnátta
  • Mjög góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Frumkvæði, sjálfstæði í starfi og skipulögð vinnubrögð
  • Áhugi á stafrænum lausnum og þróun verkferla
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum
  • Enskukunnátta á stigi B1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi

Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi

Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi

Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi

Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi

Advertisement published19. March 2026
Application deadline7. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags