Eik fasteignafélag hf.
Eik fasteignafélag hf.
Eik fasteignafélag hf.

Viðskiptastjóri á sviði viðskiptavina

Eik fasteignafélag leitar að drífandi og árangursmiðum einstaklingi sem brennur fyrir sölu, tengslamyndun og samningsgerð í starf viðskiptastjóra útleigu. Sem viðskiptastjóri hjá Eik tekur þú beinan þátt í tekjuöflun, uppbyggingu og þróun viðskiptasambanda og ert ábyrg(ur) fyrir því að tryggja að viðskiptavinir félagsins njóti framúrskarandi þjónustu og klæðskerasniðinna lausna þegar kemur að húsnæðismálum.

Starfið felur í sér frábært tækifæri fyrir einstakling sem hefur djúpstæðan skilning á íslensku atvinnulífi og atvinnuhúsnæðismarkaði, vill hafa áhrif og á auðvelt með að sýna frumkvæði í flóknum málum á borð við samningsgerð, faglegri ráðgjöf til viðskiptavina og samskiptum við viðskiptavini, aðra starfsmenn Eikar og utanaðkomandi ráðgjafa.

Starfið heyrir undir nýstofnað svið viðskiptavina Eikar fasteignafélags sem er m.a. ábyrgt fyrir útleigu fasteigna félagsins, viðskiptaþróun og húsumsjón með eignum félagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Afla nýrra viðskiptatækifæra með skipulagðri og agaðri nálgun
  • Styrkja og viðhalda viðskiptasamböndum við núverandi viðskiptavini félagsins
  • Sýning á eignum með áherslu á lausnir og greiningu á þörfum viðskiptavina
  • Finna og nýta ný viðskiptatækifæri og fjölga tekjustoðum innan viðskiptasambanda
  • Leiða samningaviðræður og bera ábyrgð á skráningu skjala tengdum leigusamningum, undirbúningi kynninga og tillagna fyrir viðskiptanefnd félagsins og eftir atvikum stjórn
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi samskiptafærni, rík þjónustulund og brennandi áhugi á atvinnurekstri og þörfum viðskiptavina
  • Góðir greiningarhæfileikar, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Öflugt tengslanet og þekking á atvinnuhúsnæðismarkaði er kostur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Góð tölvukunnátta, sérstaklega í Excel
  • Geta til að vinna undir álagi, taka ákvarðanir undir pressu og leiða mörg verkefni í einu
Advertisement published19. March 2026
Application deadline1. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Working under pressurePathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags