
66°North
Sjóklæðagerðin hf. betur þekkt sem 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki Íslands.
Árið 1926 hóf fyrirtækið framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum en seinna bættist við vörulínu fyrirtækisins vinnufatnaður fyrir fólk í landi.
Rætur fyrirtækisins liggja því í framleiðslu sjó- og vinnufatnaðar og er fyrirtækið afar stolt af þeirri arfleifð sinni. Í dag er hönnun og framleiðsla útivistarfatnaðar kjarninn í starfsemi fyrirtækisins sem framleiddur er undir vörumerkinu 66°Norður en fyrirtækið leggur mikið upp úr gæðum vörunnar þar sem eingöngu eru notuð bestu fáanlegu efnin í framleiðsluna.
Í dag starfa um 400 manns hjá 66°Norður og starfar fyrirtækið í fjórum löndum, á Íslandi, í Danmörku, Bretlandi og Lettlandi.

Starfsmaður í vöruhús 66°Norður
Vöruhús 66°Norður leitar að jákvæðum og lausnamiðuðum einstaklingi með ríka þjónustulund í framtíðarstarf. Um er að ræða fullt starf fyrir einstakling sem hefur áhuga á fjölbreyttum verkefnum og vill taka þátt í að tryggja skilvirka afgreiðslu vefpantana, skila og sendinga á vörum fyrirtækisins.
Vinnutími er 8:00-16:00 mánudaga til fimmtudags og 8:00-15:00 á föstudögum.
Fyrsti starfsdagur er áætlaður um miðjan maí 2026.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tiltekt, umsýsla og afgreiðsla vefpantana
- Umsjón með skilum á vefpöntunum
- Samskipti við verslanir og þjónustusvið í tengslum við einstaklings sendingar úr vöruhúsi.
- Aðstoð við þjónustuver þegar kemur að upplýsingum um stöðu vefpöntunar
- Samskipti við flutningsaðila
- Önnur tilfallandi verkefni tengd vefpöntunum og vöruhúsavinnslu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Skipulagshæfni og góð samskiptafærni
- Góð íslensku og ensku kunnátta
- Stundvísi
- Rík þjónustulund og frumkvæði í starfi
- Dugnaður og ábyrgð
Advertisement published25. March 2026
Application deadline25. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Miðhraun 11, 210 Garðabær
Type of work
Skills
ProactiveHuman relationsEmail communicationPlanningPunctualCustomer service
Suitable for
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (12)

Almennt starf í flutningaþjónustu
Landspítali

Útkeyrsla og lagerstarf - Delivery Driver & Warehouse worker
Ali

Reikningagerð og móttaka - Verkstæði Vélrásar
Vélrás

Akranes - sumarstarf
Pósturinn

Borgarnes - sumarstarf
Pósturinn

Kranabílstjóri á nýjan kranabíl
Ísbor ehf

Sölufulltrúi í timbur- og lagnadeild BYKO Granda
Byko

Bílstjóri Reykjavík-Akureyri
SBN Flutningar

Starfsmaður óskast í vöruafgreiðslu hjá Málmsteypunni
Málmsteypan

Lagerstarf - Framtíðar & Sumar
Samhentir Kassagerð hf

Þjónustufulltrúi í sérverkefnadeild
Jónar Transport

Meiraprófsbílstjóri á bílaflutninga- og björgunarbíla.
Krókur