Byko
Byko
Byko

Sölufulltrúi í timbur- og lagnadeild BYKO Granda

Við hjá BYKO erum að leita að öflugum starfsmanni til liðs við okkur í timbur- og lagnaverslun BYKO Granda. Ef þú ert framsækinn og faglegur starfsmaður með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Vinnutími

Um er að ræða fullt starf og vinnutími er ýmist 09:00-17:00 og 10:00-18:00 alla virka daga.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Sala, ráðgjöf og tilboðsgerð til viðskiptavina
  • Afgreiðsla til viðskiptavina

Við leitum að starfsmanni með:

  • Reynslu af sölustarfi
  • Þekkingu á byggingaefni, kostur
  • Menntun í byggingafræðum, mikill kostur
  • Ríka þjónustulund
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhuga á verslun og þjónustu
  • Íslenskukunnátta, skilyrði

Fríðindi í starfi

  • Velferðarstyrkur
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Styrkur til töku fæðingar- og foreldraorlofs
  • Símastyrkur (ef við á)

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

Umsóknarfrestur er til og með 29.mars

Allar nánari upplýsingar veitir Karl Már Lárusson, ([email protected]) verslunarstjóri.

Advertisement published18. March 2026
Application deadline29. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Fiskislóð 15-21, 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags