Centara
Centara

Þjónusturáðgjafi

Hugsar þú í lausnum og brennur fyrir því að sjá fyrirtæki ná árangri með tækni? Viltu vera hluti af öflugu teymi og sækja á erlenda markaði?

Centara er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í gervigreind og sjálfvirkni fyrir vinnslu reikninga og pantana. Við erum að vaxa hratt og leitum að ráðgjafa sem vill vaxa með okkur.

Þú verður sérfræðingur í lausnum Centara og lykiltenging milli okkar, samstarfsaðila og viðskiptavina. Þú munt koma að innleiðingum, veita þjálfun, greina tæknileg vandamál og hjálpa viðskiptavinum að fá sem mest út úr lausnunum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stuðningur við innleiðingar hjá viðskiptavinum
  • Þjálfun og leiðbeiningar til samstarfsaðila
  • Greining og úrlausn tæknilegra vandamála
  • Þróun þjálfunarefnis og notendahandbóka
  • Samskipti við samstarfsaðila og viðskiptavini á Íslandi og erlendis
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hefur reynslu af Microsoft Dynamics 365 Business Central eða NAV
  • Þekkir ferla tengda innkaupum, viðskiptakröfum (AR) eða viðskiptaskuldum (AP)
  • Hefur unnið í innleiðingar- eða ráðgjafarhlutverki
  • Talar og skrifar íslensku og ensku af öryggi
  • Getur útskýrt flókin mál á einfaldan og skýran máta
  • Þekking á rafrænum reikningum, PEPPOL eða EDI er sérstaklega vel þegin
Fríðindi í starfi
  • Sveigjanlegan vinnutími og möguleika á fjarvinnu
  • Íþrótta- og samgöngustyrk
  • Raunveruleg tækifæri til framgangs — við erum að vaxa og þú getur vaxið með okkur
  • Spennandi starf þar sem þú ert ekki aðeins að framkvæma — þú tekur þátt í uppbyggingunni
Advertisement published26. March 2026
Application deadline9. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Skemmuvegur 2A, 200 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.Navision
Professions
Job Tags