Intellecta
Intellecta
Intellecta

Skrifstofustjóri í hlutastarf

Intellecta óskar eftir að ráða lausnamiðaðan og jákvæðan einstakling í starf á skrifstofu fyrirtækisins. Um er að ræða hlutastarf og mun viðkomandi sinna fjölbreyttum rekstrartengdum verkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón með daglegum rekstri skrifstofu
  • Styðja við starfmannatengd mál og fræðslu
  • Móttaka og gerð reikninga
  • Halda utan um fundi, viðburði og umsjón með gestamóttöku
  • Fylgja eftir þróun innri ferla fyrirtækisins
  • Umsjón með efni á heimasíðu og samfélagsmiðlum Intellecta
  • Styðja við stjórnendur og teymi eftir þörfum
  • Fylgja eftir tilboðsgerð og útboðum
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Frumkvæði, jákvæðni og lausnamiðað viðhorf
  • Góð þekking á Excel og góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Um Intellecta:

Intellecta var stofnað árið 2000 og starfar á tveimur sviðum: ráðgjöf og ráðningum. Við vinnum með stjórnum og æðstu stjórnendum við að bæta rekstur og auka verðmæti fyrirtækja og stofnana. Ráðgjafar okkar hafa sterkan faglegan bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Ráðgjafarsvið Intellecta sinnir verkefnum s.s. á sviði upplýsingatækni, stefnumótunar og stjórnunar auk þess sem kjarakönnun Intellecta hefur veitt stjórnum og stjórnendum góða innsýn inn í þróun launa á markaði. Ráðningarsvið Intellecta sinnir ráðningum stjórnenda og sérfræðinga bæði fyrir opinberar stofnanir og einkamarkaðinn. Þá sinnir sviðið einnig mannauðsráðgjöf og ráðgjöf til einstaklinga í atvinnuleit.

Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl 2026 en unnið verður úr umsóknum jafnóðum. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni sem nýtist í starfi. Við svörum öllum umsækjendum að ráðningu lokinni.


Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) og Einar Þór Bjarnason ([email protected]).

Advertisement published26. March 2026
Application deadline12. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags