Skatturinn
Skatturinn

Sérfræðingur á álagningarsviði hjá Skattinum

Skatturinn leitar að áhugasömum sérfræðingi til að starfa með öflugum hópi starfsfólks á álagningarsviði í höfuðstöðvum Skattsins í Katrínartúni í Reykjavík. Meginhlutverk álagningarsviðs er að leggja skatta og gjöld á einstaklinga og lögaðila og sinna þeim verkefnum sem því tengjast, þ.m.t. undirbúningi, þjónustu, eftirliti og afgreiðslu erinda og kæra. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skoðun á framtölum lögaðila fyrir álagningu m.t.t. skattareglna
  • Afgreiðsla á kærum og erindum lögaðila
  • Leiðrétting og endurskoðun framtala lögaðila eftir álagningu
  • Aðstoð og upplýsingagjöf til skattaaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði lögfræði, viðskiptafræði eða hagfræði (lágmarksmenntun er bakkalár gráða)
  • Þekking á bókhaldi og reikningsskilum er æskileg
  • Þekking á málsmeðferðarreglum og almennri skattframkvæmd er æskileg
  • Gott vald á íslensku  og ensku í töluðu og rituðu mál 
  • Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð
  • Rík þjónustulund, jákvæðni og góðir samskiptahæfileikar
  • Hreint sakavottorð.
Advertisement published23. March 2026
Application deadline7. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Katrínartún 6
Type of work
Professions
Job Tags