Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Sumarstarf á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk - Drekavellir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í lærdómsríkt sumarstarf á heimili fatlaðs fólks, staðsett á Völlunum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Starfið er tímabundið sumarstarf til lok ágúst 2025.

Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun, kvöld, og helgarvaktir. Um er að ræða 80-100% starf.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
  • Almenn heimilisstörf
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Ágætis tölvukunnátta
  • Líkamleg geta til að sinna verkefnum á vinnustað
  • Ökuréttindi skilyrði

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Frekari upplýsingar um starfið Berglind Brynjarsdóttir, forstöðukona í síma: 544-2360, netfang: [email protected] eða Hrönn Hilmarsdóttir, netfang: [email protected]

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 10. júlí 2025.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Advertisement published2. July 2025
Application deadline10. July 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags