

Skipulögð og áreiðanleg aðstoðarkona óskast
Ég er 56 ára gömul kona að leita mér að persónulegum aðstoðarkonum. Starfið felst í að aðstoða mig við öll þau verkefni sem ég tek mér fyrir hendur, en ég þarf aðstoð við allar athafnir daglegs lífs. (klæða mig, koma mér milli staða, eldhússtörf o.s.frv.). Í frítíma mínum hef ég gaman að bakstri, útivist, fara í leikhús, göngutúra og ferðast.
Ég er með mikið kattarofnæmi þannig umsækjandi má ekki eiga kött eða vera í kringum ketti.
Aðstoðarkonur mínar þurfa vera íslenskumælandi, vera áreiðanlegar, umhyggjusamar, skipulagðar og heilsuhraustar. Konur á aldrinum 30. ára og eldri, með reynslu af umönnunarstörfum sem eru tilbúnar til að vinna við persónulega aðstoð eru hvattar til að sækja um. Reynsla af sambærilegum störfum er kostur en ekki skilyrði.
Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, en hægt er að lesa nánar um hugmyndafræðina og notendastýrða persónulega aðstoð á NPA miðstöðin - NPA miðstöðinLaun eru samkvæmt kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar og Eflingar.


















