Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Starfsfólk í sérhæfða dagþjálfun Roðasala

Roðasalir eru sérhæfð dagþjálfun fyrir einstaklinga með heilabilun sem staðsett eru í Salahverfi í Kópavogi. Markmið þjónustunnar er að efla virkni, viðhalda færni og getu einstaklinga ásamt félagsstarfi til að rjúfa einangrun. Með þjónustunni er hægt að lengja dvöl einstaklinga heima og hvíla aðstandendur.

Við óskum eftir því að ráða til okkar jákvæða, öfluga einstaklinga með gott frumkvæði til starfa í dagþjálfun Roðasala. Um er að ræða framtíðarstarf þar sem unnið er í dagvinnu frá kl.08:00-16:00, alla virka daga. Vinnuhlutfall skv. samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð er að viðhalda lífsgæðum skjólstæðingum, efla félagslega virkni og sjálfsmynd og draga úr einangrun og vanlíðan. Starfið felst einnig í því að efla líkamlega og vitsmunalega hæfni með það að markmiði að viðhalda eða bæta getu einstaklingsins til lifa innihaldsríku lífi.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð íslenskukunnátta
  • Jákvæðni og frumkvæði í starfi
  • Góðir samskiptahæfileikar
  • Þolinmæði og skilningur
  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
Fríðindi í starfi
  • Stytting vinnuvikunnar
  • Frítt í sundlaugar Kópavogs
Advertisement published26. November 2024
Application deadline26. December 2024
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Roðasalir 1, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Non smokerPathCreated with Sketch.Care (children/elderly/disabled)
Professions
Job Tags