FSRE
FSRE

Spennandi starf í fasteignaumsýslu

FSRE leitar að lausnamiðuðum, nákvæmum og jákvæðum einstaklingi með þekkingu og áhuga á fasteigna- og leigumálum. Starfið felur í sér þjónustu við opinbera aðila og samskipti við leigusala. Viðkomandi mun tilheyra teymi sérfræðinga á þjónustusviði sem veitir ráðgjöf og stuðning við verkefni í umsjón FSRE.

FSRE hefur yfirumsjón með húsnæðisöflun fyrir stofnanir ríkisins. Auk þess að stýra hönnun, undirbúningi og eftirliti með framkvæmdum við nýbyggingar felur starfsemin í sér verkefni sem varða breytingar og endurbætur á húsnæði, kaup og sölu fasteigna, aðstöðustýringu og almenna ráðgjöf til ráðuneyta og stofnana. Einnig hefur FSRE umsjón með uppbyggingu ofanflóðavarna og náttúruinnviða um land allt.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Öflun húsnæðis fyrir ríkisaðila
  • Samningaviðræður og samningagerð
  • Samskipti við leigusala og leigutaka á leigutíma
  • Framsetning gagna vegna ákvarðanatöku um framgang verkefna
  • Þátttaka í þróun á þjónustu FSRE og almennum umbótaverkefnum
  • Samskipti og ráðgjöf til opinbera aðila svo sem ráðuneyta
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla og þekking af fasteigna- og leigumálum
  • Reynsla af teymisvinnu og verkefnastýringu
  • Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Þekking á þjónustuferlum og nýtingu gervigreindar er kostur
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði, metnaður, skipulagsfærni og öguð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni í tjáningu í ræðu og riti
Advertisement published27. August 2025
Application deadline8. September 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags