Byko
Byko
Byko

Sölufulltrúi Timburverslun Byko Breidd

Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til liðs við okkur í timburverslun BYKO Breidd. Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Vinnutími er aðra hverja viku frá kl. 8-18 og hina vikuna frá kl. 9-18. Unnið er annan hvern laugardag.

Við leitum að einstaklingi með:

  • Reynslu af sölustarfi
  • Þekkingu á byggingaefni, kostur
  • Menntun í byggingafræðum, mikill kostur
  • Ríka þjónustulund
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhuga á verslun og þjónustu
  • Íslenskukunnátta, skilyrði

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Sala, ráðgjöf og tilboðsgerð til viðskiptavina
  • Afgreiðsla til viðskiptavina

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavinar í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

Umsóknarfrestur er til og með 15. október en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.

Allar nánari upplýsingar veitir Renzo Gústaf Passaro ([email protected]), verslunarstjóri og Rúnar Freyr Guðmundsson ([email protected]), aðstoðarverslunarstjóri.

Advertisement published30. September 2025
Application deadline15. October 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Skemmuvegur 2A, 200 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags