
Alcoa Fjarðaál
Álver Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði hóf starfsemi árið 2007. Fjarðaál er eitt af nútímalegustu og tæknilega fullkomnustu álverum heims og er fyrirmynd hvað varðar umhverfisvernd og jafnréttismál. Álverið er það stærsta á Íslandi með framleiðslugetu allt að 360.000 tonn af áli á ári.
Álver Alcoa Fjarðaáls er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur. Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Gildi okkar eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki. Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum. Við höfum stöðugar umbætur að leiðarljósi og leggjum áherslu á þátttöku allra í umbótavinnu. Við viljum líka hafa gaman í vinnunni og láta gott af okkur leiða í samfélaginu á Austurlandi.
Samkeppnishæf launakjör og aðbúnaður til fyrirmyndar
Fjarðaál greiðir samkeppnishæf laun og aðbúnaður starfsmanna er til fyrirmyndar. Við fáum meðal annars ókeypis akstur til og frá vinnu og frítt fæði í frábæru mötuneyti. Við erum með öflugt mannauðsteymi og höfum okkar eigin heilsugæslu og aðgang að Velferðarþjónustu Heilsuverndar.
Fjölbreytt störf og mikil tækifæri til starfsþróunar
Fastráðnir starfsmenn Fjarðáls eru um 540 og þar að auki starfa um 250 manns á vegum annarra fyrirtækja í álverinu. Störfin hjá Fjarðaáli eru afar fjölbreytt og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil. Móðurfélagið Alcoa Corporation er leiðandi í áliðnaði á heimsvísu og þar eru líka tækifæri til starfsþróunar.

Skipuleggjandi viðhalds / Maintenance Planner
Alcoa Fjarðaál leitar að metnaðarfullum einstakling í starf skipuleggjanda viðhalds. Starfið felur í sér að skipuleggja verkefni, varahluti, efni, verkfæri, búnað, öryggisleyfi og skjöl. Skipuleggjandi viðhalds ber ábyrgð á skipulagsferlinu og tryggir tímanlega framvindu viðhaldsbeiðna, auk þess að vinna náið með leiðtogum viðhalds, rekstrarstjórum, framkvæmdarstjórum og tækni til að viðhalda skilvirkni og gæðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggja viðhaldsvinnu í nánu samstarfi við framleiðslu- og viðhaldsteymi
- Áætla tíma, varahluti og annað sem þarf til að leysa viðhaldsvinnu af hendi
- Tryggja að viðhaldsverk séu unnin með gæði, hagkvæmni og öryggi að leiðarljósi
- Gera innkaupabeiðnir og leita tilboða í varahluti og viðhaldsverk
- Halda utan um viðaldsgögn til frekari greiningar að verki loknu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðnmenntun eða önnur hagnýt menntun er kostur
- Reynsla af skipulagningu viðhalds og áætlanagerð er æskileg
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar
- Sterk öryggisvitund og lipurð í samskiptum
Fríðindi í starfi
- Íþrótta og meðferðastyrkir
- Mötuneyti
- Rútur frá helstu byggðarkjörnum
Advertisement published26. May 2025
Application deadline8. June 2025
Language skills

Required

Required
Location
Hraun 1, 731 Reyðarfjörður
Type of work
Skills
ProactiveClean criminal recordPositivityHuman relationsDriver's licenceIndependencePlanning
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (5)

Umsjónarmaður vöru og varahluta / Materials Coordinator
Alcoa Fjarðaál

Starfsmaður á heilsugæslu / Health Care Worker
Alcoa Fjarðaál

Verkefnastjóri fjárfestinga / Capital Projects Specialist
Alcoa Fjarðaál

Rafvirki / Electrician
Alcoa Fjarðaál

Sérfræðingur í mannauðsmálum / HR Business Partner
Alcoa Fjarðaál
Similar jobs (12)

Bílaumsjónarmaður
MAX1 | VÉLALAND

Við erum að ráða í áhættu-og gæðadeild Deloitte
Deloitte

Verkefnastjóri - Reyðarfjörður
VHE

Sölustjóri CAT Lyftara og vöruhúsalausna
Klettur - sala og þjónusta ehf

Söluráðgjafi í álgluggum
BYKO

Stálreisingarverkstjóri
Ístak hf

Tækniteiknari - Umhverfis- og skipulagssvið
Hafnarfjarðarbær

Fasteignaumsjón
Veritas

Umsjónarmaður vöru og varahluta / Materials Coordinator
Alcoa Fjarðaál

Smiður óskast eða verkamaður í byggingariðnaði
Tóm Tjara

Sérfræðingur í flutningum / Logistics Specialist
Alvotech hf

Director Technical Operations
Icelandair