Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Skemmtilegt starf á heimili fatlaðs fólks

Velferðarsvið Kópavogs óskar eftir starfsfólki, 18 ára eða eldri, í skemmtilegt starf á heimili fatlaðs fólks í Kópavogi. Markmið þjónustu við fatlað fólk hjá Kópavogsbæ er að veita persónulegan stuðning, einstaklingsmiðaða og sveigjanlega þjónustu sem skal tryggja fötluðu fólki jafnrétti og sambærileg lífskjör á við aðra íbúa bæjarins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Einstaklingsmiðaður, persónulegur stuðningur við þjónustunotendur í daglegu lífi, jafnt innan sem utan heimilis.
  • Almenn heimilisstörf.
  • Vera þjónustunotendum góð fyrirmynd.
  • Stuðla að samfélagsþátttöku og auknu sjálfstæði þjónustunotenda.
  • Að vera þátttakandi í að viðhalda gleði og jákvæðu hugarfari í umhverfi þjónustunotenda.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Tveggja ára nám á framhaldsskólastigi og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • Almenn ökuréttindi skilyrði
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf.
  • Framtakssemi og frumkvæði í starfi.
  • Hæfni til að starfa undir andlegu og líkamlegu álagi.
  • Hæfileikar til að aðlagast breyttum aðstæðum og tileinka sér nýjar nálganir.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Jákvætt hugarfar.
Fríðindi í starfi
  • Skemmtilegur félagsskapur á vinnustað
  • Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund í sundlaugum bæjarins.
Advertisement published16. January 2026
Application deadline30. January 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Skjólbraut 1A, 200 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Driver's license (B)PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Care (children/elderly/disabled)PathCreated with Sketch.Working under pressure
Professions
Job Tags