Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Tímavinnustarfsmaður í félagsmiðstöðinni Jemen

Félagsmiðstöðin Jemen óskar eftir að ráða inn frístundaleiðbeinanda í tímavinnu til og með 31. maí 2026, með möguleika á áframhaldandi starfi. Um er að ræða starf alla mánudaga frá 17:00-22:30 og svo íhlaup þegar þörf er á.

Frístundaleiðbeinandi vinnur faglegt starf með börnum og unglingum í frístundastarfi. Hann hefur umsjón með og skipuleggur hópastarf og verkefni tengdum menningar-, félags- og forvarnarstarfi félagsmiðstöðvanna. Hann vinnur í anda lýðræðis á starfsstaðnum og vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfinu.

Æskilegt að umsækjendur sé á 20. aldursári eða eldri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggur og hefur umsjón með ákveðnum hópum, verkefnum og viðburðum tengdum menningar-, félags- og tómstundastarfi í félagsmiðstöðvum í samstarfi við forstöðumann og aðra starfsmenn.
  • Vinnur faglegt starf með börnum og unglingum í frístundastarfi.
  • Vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfseminni.
  • Vinnur samkvæmt 1. og 2. stigs forvörnum í öllu starfi félagsmiðstöðvarinnar.
  • Vinnur í anda lýðræðis á starfsstaðnum og stuðlar að því að börn og unglingar eigi greiðan aðgang að lýðræðislegum ákvörðunum um starfsemi félagsmiðstöðvar.
  • Hefur umsjón með skipulögðu frístundastarfi ólíkra hópa barna og unglinga í samræmi við þeirra þarfir.
  • Sinnir öðrum þeim verkefnum sem honum kunna að vera falin af yfirmanni og fellur undir hans starfssvið.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Diplómanám í tómstundafræðum eða sambærilegu námi æskilegt.
  • Reynsla af störfum með börnum og unglingum æskileg.
  • Færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í störfum.
  • Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
  • Kunnátta í íslensku og ensku æskileg.
Advertisement published15. January 2026
Application deadline25. January 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Núpalind 7, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Independence
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags