

Sjúkraliði á göngudeild 10E Hringbraut
Við leitum að sjúkraliða sem hefur áhuga á fjölbreyttu og krefjandi starfi á göngudeild 10E Landspítala við Hringbraut.
Á deildinni er veitt víðtæk þjónusta á ólíkum sérsviðum í þverfaglegu starfsumhverfi. Starfið er fjölbreytt og gefur góð tækifæri til starfsþróunar og aukinnar þekkingar. Á deildinni er markvisst unnið að umbótum og framþróun og þar starfar samhentur hópur þar sem samvinna, metnaður og góður starfsandi eru í fyrirrúmi.
Starfið heyrir undir tvö teymi, kviðarholsskurðteymi og meltingarteymi. Starfshlutfall er 80-100% og er ráðið í starfið sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Kviðarholsskurðteymið sinnir sjúklingum fyrir og eftir skurðaðgerðir á kviðarholi, sáraskiptingum, þjónustu við stómaþega og innskriftum fyrir aðgerðir. Einnig eru framkvæmdar minniháttar aðgerðir í staðdeyfingu.
Meltingarteymið sinnir sjúklingum með IBD, næringarslöngur og næringarhnappa, skorpulifur og aðra meltingarfærasjúkdóma. Þá fer hluti starfseminnar fram á innrennslismóttöku og við rannsóknir á meltingarfærum.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir sem styður við betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Icelandic




























































