

Skurðhjúkrunarfræðingur/hjúkrunarfræðingur á skurðstofu
Laus er til umsóknar 80 - 100% staða hjúkrunarfræðings á skurðstofu Sjúkrahússins á Akureyri. Um framtíðarstarf er að ræða og er staðan laus nú þegar eða eftir samkomulagi. Um er að ræða dagvinnu auk bakvaktaskyldu.
Mikil áhersla er lögð á að taka vel á móti nýju starfsfólki og veita einstaklingsbundna aðlögun undir leiðsögn reyndra skurðhjúkrunarfræðinga.
Næsti yfirmaður er Anna Margrét Tryggvadóttir, deildarstjóri skurðstofu og sótthreinsunar.
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum skurðhjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.
Á skurðstofum SAk er fjölbreytt starfsemi með allmargar sérgreinar lækninga. Þar starfar þéttur hópur fagfólks. Öflug einstaklingsmiðuð þjálfun með reyndum skurðhjúkrunarfræðingi í boði fyrir nýliða.
- Íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur
- Starfsreynsla í hjúkrun er æskileg
- Sérnám í skurðhjúkrun eða starfsreynsla á þeim sviðum hjúkrunar sem nýtast í auglýstu starfi er kostur
- Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
- Hreint sakavottorð
36 tíma vinnuvika, velferðartorg, mötuneyti, stuðningsteymi
English










