NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Ábyrg og traust aðstoðarkona óskast sem fyrst

Proficiency in Icelandic is a necessary requirement/Íslenskukunnátta er skilyrði. Einnig er reynsla á sambærilegum störfum æskileg.

Ég er 63 árs kona sem býr í Kópavogi og óska eftir aðstoðarkonu 30 ára og eldri.

Starfið felur í sér að aðstoða mig í hverju sem ég tek mér fyrir hendur frá degi til dags, en ég þarf aðstoð við athafnir daglegs lífs og nota rafmagnshjólastól. Meðal þeirra verkefna sem ég þarf aðstoð með er almenn heimilisstörf og aðstoð við persónulegar þarfir en einnig fara aðstoðarkonur með mér á allskyns fundi, tónleika, afmæli og veisluhöld og hvað sem mér dettur í hug að gera frá degi til dags. Starfið er því mjög fjölbreytt og skemmtilegt.

Laus er 70% eða hærri staða á breytilegum vöktum alla vikuna.

Aðstoðarkonurnar mínar þurfa að:

• Vera líkamlega hraustar, áreiðanlegar, jákvæðar og sveigjanlegar.

• Geta hafið störf sem allra fyrst.

• Geta aðstoðað mig við heimilisstörfin.

• Aðstoðað mig við innkaup.

• Geta aðstoða mig við persónulegar þarfir/athafnir daglegs lífs.

• Hafa tök á að fylgja mér á fundi, til læknis, á tónleika (eða hvað annað sem ég tek mér fyrir hendur frá degi til dags).

• Hafa góða íslenskukunnáttu (ég tala mjög takmarkaða ensku).

• Hafa ökuréttindi (ég á bíl sem ég nota til persónulegra þarfa, en keyri hann ekki sjálf).

• Nauðsynlegt er að hafa hreint sakavottorð.

• Vaktir eru eftir vaktarúllu og eru á öllum tímum sólarhringsins.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar við Eflingu og Starfsgreinasambandið.

Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, en hægt er að lesa nánar um hugmyndafræðina og notendastýrða persónulega aðstoð á NPA miðstöðin - NPA miðstöðin

Advertisement published15. September 2026
Application deadline2. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Driver's license (B)PathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Physical fitnessPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Patience
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags