Tannlæknastofa Kópavogs
Tannlæknastofa Kópavogs
Tannlæknastofa Kópavogs

Tanntæknir- Aðstoðamaður tannlæknis - Ofur duglegur raðari með skipulagshæfileika

Við leitum að nýjum liðsfélaga!

Tannlæknastofa Kópavogs óskar eftir að ráða tanntækni eða aðstoðarmann tannlæknis í fullt starf.

Við leitum að jákvæðum og framtakssömum einstaklingi sem hefur góða þjónustulund, er nákvæmur og finnst gaman að hafa hlutina í röð og reglu.

Ef þú ert skipulögð/skipulagður og átt auðvelt með að vinna með öðrum þá gætir þú verið manneskjan sem okkur vantar.

Hjá okkur starfar öflugt teymi tannlækna, tannfræðinga og tanntækna. Við bjóðum upp á fjölbreytt og skemmtilegt starfsumhverfi þar sem enginn dagur er eins og nóg er af spennandi verkefnum fyrir réttan aðila.

Starfshlutfall er 100%.

Vinnutími er 08:30-16:00 alla daga nema til kl.14:00 á föstudögum.

Reynsla er ekki skilyrði – við leggjum áherslu á gott viðmót og vilja til að læra og bjóðum upp á starfsþjálfun.

Hefur þú áhuga á að ganga til liðs við okkur?
Sendu okkur kynningabréf og ferilskrá – við hlökkum til að heyra frá þér!

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur í sér

  • Símsvörun, tímabókanir, tölvupóst samskipti 
  • Innkaup
  • Móttaka sjúklinga
  • Aðstoð fyrir tannlækna
  • Aðstoð fyrir skjólstæðinga
  • Sótthreinsun tækja og áhalda
  • Frágangur og uppsetning aðgerðastofa
  • Almenn þjónusta og önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur

Reynsla ekki skilyrði og viðkomandi fær starfsþjálfun.

Aðrar hæfniskröfur eru:

  • Stundvísi
  • Jákvæði
  • Framtakssemi
  • Nákvæmni
  • Almenn tölvukunnátta
  • Mjög góð íslenskukunátta, bæði töluð og rituð
  • Góð ensku kunnátta, bæði töluð og rituð
Fríðindi í starfi

Hádegismatur

Advertisement published13. September 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Vallakór 4, 203 Kópavogur
Sólvallagata 84, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Quick learnerPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.MeticulousnessPathCreated with Sketch.IT project managementPathCreated with Sketch.Working under pressurePathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags