

Sérnámsstöður í barnalækningum
Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður í hlutasérnámi til tveggja ára í barnalækningum. Sérnámið er vottað af mats- og hæfisnefnd heilbrigðisráðuneytisins í samræmi við reglugerð 856/2023 og byggt á marklýsingu evrópsku barnalæknasamtakanna (European Academy of Pediatrics). Sérnámið fer fram á Barnaspítala Hringsins. Auk þess er boðið upp á 3 mánaða viðbótarþjálfun á barna- og unglingageðdeild Landspítala.
Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er á bilinu janúar til mars 2027, en gert er ráð fyrir að upphaf ráðningar hjá þeim umsækjendum sem eru að klára sérnámsgrunn á Landspítala verði beint í kjölfarið af honum. Ef semja á um orlof þar á milli er það gert í samkomulagi við kennslustjóra sérgreinarinnar. Föstudaginn 26. febrúar 2027 er móttökudagur sérnáms.
Sjá kynningarmyndband.
Sjá nánari upplýsingar um sérnám á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri.
- Vinna og nám á bráðamóttöku barna, legudeildum og nýburadeild, dag- og göngudeildum ásamt vaktþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna
- Þátttaka í ráðgjafaþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna
- Virk þátttaka í fræðslu og kennslu er hluti af sérnáminu
- Þátttaka í gæða- og vísindavinnu. Sérnámlæknir á að ljúka a.m.k. einum klínískum leiðbeiningum/ verklagsreglum og einu gæðaverkefni skv. stöðlum Landspítala
- Sérnámslæknir ber sjálfur ábyrgð á fullri þátttöku í öllum þáttum sérnáms og skrásetningu þess í samræmi við marklýsingu og skráningarkerfi
- Framgangur milli námsára er ákvarðaður með framvindumati og er launasetning í samræmi við staðfesta framvindu
- Þátttaka í fræðslu og hermikennslu
- Hafa lokið sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi, sem samþykkt hefur verið af kennsluráði sérnámsgrunns, við upphaf starfs
- Íslenskt lækningaleyfi
- Áhugi á að starfa við viðkomandi sérgrein
- Að lágmarki B2 tungumálafærni í íslensku, nema um annað hafi verið samið sérstaklega
- Fyrri starfsreynsla, reynsla af vísinda-, umbóta- og gæðastörfum æskileg
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
- Áreiðanleiki, stundvísi og árangursmiðað viðhorf
English




























































