

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á hjarta- og æðaþræðingastofu
Heilbrigðisritari / skrifstofumaður óskast í hlutastarf á hjarta- og æðaþræðingastofu við Hringbraut. Starfshlutfall er 50% og veitist frá 1. nóvember 2026 eða eftir samkomulagi. Um er að ræða dagvinnustarf sem felur í sér fjölbreytt, krefjandi verkefni og mikil samskipti.
Á hjarta- og æðaþræðingastofu á aðgerðasviði starfar um 13 manna samhent teymi reyndra starfsmanna í nánu samstarfi við aðrar deildir spítalans. Þar eru gerðar hjartaþræðingar, kransæðavíkkanir, gangráðsísetningar, raflífeðlisfræðilegar rannsóknir og aðgerðir, auk annarra verkefna sem tengjast greiningu og meðferð hjartasjúkdóma.
Leitað er eftir þjónustuliprum einstaklingi sem er fljótur að tileinka sér ný verkefni, býr yfir góðri samskiptahæfni og á auðvelt með að starfa í teymi. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða einstaklingsmiðaða aðlögun að starfi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir sem styður við betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
English
Icelandic




























































