Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Móttökuritari - Heilsugæslan Efra Breiðholti

Heilsugæslan Efra-Breiðholti leitar að skemmtilegum og jákvæðum einstaklingi í starf móttökuritara. Starfið er fjölbreytt og unnið í lifandi umhverfi þar sem góð samskiptahæfni, þjónustulund og jákvætt viðmót skipta miklu máli. Ef þú hefur gaman af samskiptum við fólk og metnað til að veita framúrskarandi þjónustu viljum við gjarnan fá að hitta þig.

Um er að ræða 50% tímabundið starf til eins árs. Vinnutíminn er að mestu fyrir hádegi og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Heilsugæslan Efra Breiðholti þjónar fyrst og fremst íbúum Efra-Breiðholts en öllum er frjálst að skrá sig á stöðina. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef heilsugæslunnar https://island.is/s/hh

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga

  • Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinna

  • Tekur á móti skilaboðum og kemur þeim til réttra aðila.

  • Sinnir tímabókunum í viðtöl hjá læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki.

  • Flokkun á pósti og rafrænum sendingum ásamt skönnun og frágangi gagna

  • Sér um að opna heilsugæslustöð að morgni þegar þess þarf

  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nám sem nýtist í starfi

  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Jákvæðni og rík þjónustulund

  • Reynsla af móttökuritarastarfi æskileg

  • Reynsla af Sögukerfi kostur

  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð

  • Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg

  • Íslenskukunnátta skilyrði

  • Góð almenn enskukunnátta æskileg

Advertisement published11. September 2026
Application deadline24. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Suðurströnd 12, 170 Seltjarnarnes
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Phone communicationPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.Independence
Professions
Job Tags