Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Deildarstjóri óskast í búsetuþjónustu

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar auglýsir eftir metnaðarfullum og færum deildastjóra í 100% starf í dagvinnu (með betri vinnutíma) í íbúðakjarna fyrir geðfatlaða í Grafarholti. Markmið þjónustunnar er að veita íbúum aðstoð til sjálfstæðs og innihaldsríks lífs, innan sem utan heimilis, í samræmi við hugmyndafræðina um sjálfstætt líf, þjónandi leiðsögn og valdeflingu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón, eftirlit og fagleg ábyrgð á daglegri þjónustu og þjónustuþörfum íbúa í sínu teymi.
  • Stýrir daglegum störfum annarra starfsmanna í samráði við forstöðumann.
  • Hvetur og styður íbúa til sjálfshjálpar, sjálfræðis og félagslegrar virkni.
  • Skipuleggur og ber ábyrgð á framkvæmd einstaklingsáætlana í samráði við íbúa, starfsmenn og forstöðumann.
  • Veitir starfsmönnum leiðsögn og tilsögn um framkvæmd þjónustu og tekur virkan þátt í teymisvinnu og þróunar- og uppbyggingarvinnu varðandi faglegt starf.
  • Samvinna við starfsfólk, aðstandendur og aðra þjónustuaðila íbúa.
  • Tryggir að framkvæmd þjónustunnar sé í samræmi við lög, reglur, stefnur og markmið velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis- og/eða menntavísinda sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af störfum á geðsviði eða í búsetuþjónustu er skilyrði. Reynsla af stjórnun og teymisvinnu er æskileg.
  • Reynsla og þekking á vinnu með íbúum út frá hugmyndafræði um sjálfstætt líf, þjónandi leiðsögn og valdeflingu er mikill kostur.
  • Afburðahæfni og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, jákvæðni, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Kunnátta á tímaskráningarkerfinu Vinnu og Vinnustund er kostur.
  • Góð íslenskukunnátta – C1 eða C2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Góð almenn tölvufærni og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
  • Sund- og menningarkort Reykjavíkurborgar
  • Heilsu- og samgöngustyrkur
  • 36 stunda vinnuvika (betri vinnutími í dagvinnu)
  • Aðgengi að stuðnings- og ráðgjafateymi borgarinnar
Advertisement published18. September 2026
Application deadline2. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Þórðarsveigur 1, 113 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Punctual
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags