Álfhólsskóli
Álfhólsskóli
Álfhólsskóli

Sérkennari og eða kennari í íslensku sem annað tungumál í Álfhólsskóla

Í Álfhólsskóla eru um 560 nemendur í 1.-10. bekk og um 120 starfsmenn. Skólinn byggir á langri sögu um framsækið og árangursríkt skólastarf. Starfið einkennist af fjölbreyttum kennsluháttum, áherslu á læsi, teymiskennslu og leiðsagnarnám. Allir nemendur skólans eru með spjaldtölvur. Álfhólsskóli er fjölmenningarlegur skóli sem leggur áherslu á inngildingu allra nemenda. Í skólanum eru starfrækt námsver fyrir nemendur með einhverfu. Álfhólsskóli er réttindaskóli Unicef. Skólinn hefur mótað eigin skólamenningaráætlun ,,Öll sem eitt". Skólinn er jafnframt Grænfána- og Heilsueflandi skóli.

Einkunnarorð skólans eru : menntun - sjálfstæði - ánægja.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sérkennsla og kennsla í íslensku sem annað tungumál
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu
  • Reynsla í ÍSAT kennslu og eða sérkennslu æskileg
  • Góð íslenskukunnátta
  • Þekking og reynsla á teymiskennslu æskileg
  • Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Mjög góð þekking á Mentor, upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi
Fríðindi í starfi

Allt starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund.

Advertisement published16. March 2026
Application deadline30. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Álfhólsvegur 120, 200 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags